-Skallinn-

"It´s like Stykkishólmur of Switzerland"

mánudagur, maí 07, 2007

1-2

Grátlegt tap staðreynd nuna á laugardaginn. Áttum ekkert spes fyrri hálfleik eins og í öllum hinum leikjunum í þessari seríu (undir með 12stigum), en á móti kom að við áttum sterkan seinni hálfleik og vorum í algjörri draumastöðu til að klára leikinn. Við vorum yfir með 2stigum og 10sek eftir þegar brotið var á stóra manninum okkar. Hann fer á línuna og klikkar báðum, en við náum frákastinu og í þetta skiptið er brotið á Senegalanum. Hann fer á línuna með 7 sekúndur eftir en allt kom fyrir ekki og bæði vítin af. Þeir bruna í sókn og sækja villu, þar sem þeirr besti maður fer á línuna og setur bæði skotin niður. Framlenging.
Í framlengingunni höfðum við frumkvæðið framan af, en klikkuðum svo á nokkrum upplögðum færum meðan þeir settu erfið skot niður hinum meginn. Leikurinn endaði á 4stiga sigri Fribourg 93-89.
Það eina sem við þurftum var eitt víti af þesum 4 að detta vegna þess að við hefðum brotið á þeim áður en þeir hefðu komist í skotstöðu og þar af leiðandi átt tvö vitaskot, undir með 3 stigum, og 5 sekúndur eða svo eftir. Ég er ekkert að segja að sigurinn hefði pottþétt endað okkar meginn, en ég tel líkurnar ansi góðar.
En svona er þetta víst. Menn verða að nýta þau tækifæri sem í boði er, sérstaklega gegn jafn góðu liði og Fribourg er. Ég var ágætur með 16stig.

Það kom mér mjög á óvart þegar ég kíkti í blaðið svo á sunnudagsmorguninn og sá þá vera að kvarta undan okkur. Sögðu að stóru mennirnir okkar væri að reyna að slasa menn, og svo sagði sá sem skrifaði greinina að ég kæmist upp með að hanga í treyjum Fribourg manna trekk í trekk. Það se kom mér hvað mest á óvart við þetta allt saman var það að leikmaðurinn sem var að kvarta undan okkur er þeira besti og leikreyndasti leikmaður sem hefur spilað í efstu deild í frakklandi sem og euroleague, og er ég ansi viss um að það sé talsvert harðari bolti spilaður þar heldur en hérna í "stykkishólmi of Switzerland". En ætli hann hafi ekki verið að reyna að vekja athygli dómaranna á þessu,enda lesa þeir vafalítið blöðin sem og aðrir.
Ég tek þessu öllu samt sem hrósi, enda sýnir þetta að vörnin okkar er að trufla þá... þeas vörnin okkar sem við spilum alltaf í seinni hálfleik í þessum leikjum. Stefnan er að spila þannig allan leikinn a miðvikudaginn.

Annars vill ég óska öllum mínum soldiers sem eru að djöflast í prófstressinu og öllum þeim lestri sem fylgir gós gengi. Munið bara reglu númer eitt: Ekki Panica!!
......þessi viska var í boði fröken Ragnheiðar



laugardagur, maí 05, 2007

Leikur 3 í dag......

BC Boncourt - Olympic Fribourg



mánudagur, apríl 30, 2007

Ósigur gegn blogger, feðgaferð, nafngiftir ofl.


Ég hef játað mig sigraðann. Þrátt að hafa gefið það út þó nokkrum sinnum að ég ætlaði ekki að láta blogger neyða mig til að opna gmail-reikning, þá gat eg þetta hreinlega ekki lengur. Síðan var orðin að engu, eftir 5 falleg ár Ég var meirað segja farinn að forðast það eins og ég gat að kíkja á hana, en í morgun þegar ég slysaðist á hana þá rann upp fyrir mér að blogger og Gmail höfðu unnið þetta stríð. Veit samt ekki alveg afhverju ég opnaði ekki bara þennan helvitis reikning og gekk frá þessu máli, fannst það bara e-ð of mikið vesen, sem það var svo alls ekki.
En allavega það er ágætis tími frá síðasta bloggi þannig ég held að það sé best að renna yfir það sem stóð uppúr.

-KR varð Íslandsmeistari eftir 7 ára bið. Óska drengjunum til hamingju með það. Ófá símtölin sem maður fékk í geðsýkinni sem fylgdi. Fékk svakalega heimþrá þegar ég sá sýnt úr leiknum, og ég tala nu ekki um þegar ég fékk að heyra stemminguna.

-Gummi og pabbi komu hingað í heimsókn og gerðu vel við sig. Það var ótrúlega gott að hafa þá hérna, afslappaðir og ekkert vesen sem fylgi þeim.... vantaði bara Finnsluna til að gera þetta að alvöru feðgaferð. Ég gat meirað segja læst þá úti meðan ég fór í móralskann kvöldmat og keilu með liðinu í frakklandi. Sá þá tvo fyrir mér í kastinu hérna fyrir utan húsið þegar ég kom loksins til baka, klukkan að ganga 12 á miðnætti, þar sem allt er lokað hérna á sunnudögum en svo var ekki. Gumma tókst einhvern veginn að troða sér inn um gluggarifu á svalarglugganum, þannig þetta reddaðist. Þetta náðist meirað segja á mynd, en því miður hef ég ekki fengið hana senda. Annars forum við bara ut að borða, fylgdumst með KR leikjunum á netinu (gummi by the way kominn í uppvask í 4.leikhluta og framlengingunni í oddaleiknum gegn Snæfell útaf stressi), og á meðan ég var á æfingum fóru þeir í óvissuferðir hingað og þangað undir stjórn Gumma . Virkilega gott að fá þá....

-Við unnum eftir erfiða seríu gegn Monthey í oddaleik 3-2, og núna taka við undanúrslitin geng Fribourg Olympic en þeir eru taldir líklegastir til að taka titilinn í ár. Svona svipað og Njarðvík var heima, eigum við þá ekki bara að vera KR??

-Nýjasta og uppáhalds vinkona mín (sem ég hef þó ekki séð ennþá) er komin með nafn: Ágústa Rut(h) Andradóttir. Til hamingju með það. Sé þig væntanlega í Maí, kannski byrjun júní.

-Það er hér um bil búið að negla það að ég fari til Róm um leið og tímabilinu lýkur hér. Á bara eftir að koma í ljós hvenær nákvæmlega.

Annars er allt mjög gott hérna. Loksins komið ágætis flæði í úrslitakeppnina, og ekki skemmir veðrið fyrir, 25 stiga hiti og blanka logn. Ótrúlegt hvað það lífgar yfir manni þegar sólin fer að skína. Bantar þó algjörlega laug. Ég og frakkinn vorum með tvær í sigtinu(sundlaugar þá) en það fór ekki betur en svo að önnur var tóm og ekki vitað hvenær eða hvort hún verði fyllt, á meðan hin var ekki opnuð, þeas utilaugin, og opnar ekki fyrr en í júni. Frakkinn var brjálaður, blótaði öllu fram og til baka, enda buinn að kaupa sér speedo.....það er víst regla í France að ef maður ætlar að busla e-ð þá skal maður gjörasvo vel að vera í sundskýlu, afhverju veit enginn.

ætla að enda þetta á síðustu myndinni sem var tekin í feðgaferðinni




mánudagur, apríl 16, 2007



miðvikudagur, mars 21, 2007

Brot af því helsta.....

Það virðist sem enginn kraftur sé í kringum þessa síðu lengur. Í þau fáu skipti sem ég hef ætlað að loksins rita eitthvað hef ég verið ítrekað beðinn um að stofna Gmail reikning. Bölvað vesen sem ég nenni ekki að standa í og þar af leiðandi hef ég forðast það eins og heitan eldinn að fara inná blogger.com. Í kvöld fékk ég nóg af þessum aumingjagang og lét loksins vaða. Komst svo að því að ég þarf ekkert að opna Gmeil reikning, þannig þetta óþarfa fjarvera í bloggheiminum. En herna er það helsta sem hefur gerst:

- Andri Fannars og Linda Hreiðars eru orðnir foreldrar. Eignuðust litla stúlku, sem hefur ekki verið skýrð ennþá, en áreiðanlegar heimildir sejga mér að hún verði skýrð Úrsúla. Nafnið að sjálfsögðu komið úr Dracula laginu fræga. En að öllu gamni slepptu þá er ég ótrulega hamingjusamur fyrir þeirra hönd og vissi varla hvernig ég átti að mér að vera þegar ég heyrði fréttirnar.

-Þetta voru ekki einu gleðifréttirnar, því Sólmundur Hólm og kærasta hans eiga von á barni um miðjan september ef mer skjátlast ekki. Til hamingju með það Sólmundur og frú.

-KR vann ÍR í fyrstu umferð úrslitakeppninnar heima 2-1, og mæta Snæfell í undanúrslitum.

-Eftir blússandi sól og gott veður síðastliðnar vikur byrjaði að snjóa hér í fyrradag. Í morgun vaknaði ég og allt var hvítt með tilheyrandi kulda og leiðindum. Þetta kann ég ekki vel við eftir tvær vikur á stuttbuxum og sandölum. Skilst samt að hann verði ekki hér lengi blessaður snjórinn.

-Ég fékk mér Fondu í fyrsta skipti. Ágætis máltíð, þó svo ég gæti ekki borðað mig saddann. Þetta er nátturulega bara fullorðins útgáfan af því að grilla marshmellows saman, og er stemmingin eftir því. Allir hressir og kátir með pinnana sína og brauðbitana. Ég vill einmitt meina að það sé algjörlega ómögulegt að vera ekki í góðu skapi yfir Fondu kvöldverð. Því hefur stefnan verið sett á einn slíkann í sumar.

-Finnur bróðir varð SAC deildarmeistari á dögunum og fær þar af leiðandi ógeðishring. Virkilega vel gert hjá þeim, tala nú ekki um eftir að hafa misst þá leikmenn sem þeir misstu eftir síðasta tímabil.

-Við höfum unnið 5 af síðustu 6 og erum í 4.sæti deildarinnar fyrir síðstu umferðina sem er núna á laugardaginn. Þyrftum helst að sigra í honum til að vera með heimavallar rétt í fyrstu umferð.

-Graðmennið í Róm skorði fallega sigurkörfu í síðasta leik. Karfan þótti minna mikið á Ewing fadeawayin frægu og hefur jón tileinkað körfunni honum. HÉR getiði séð körfuna

Ég er eflaust að gleyma einhverju, en þetta er allavega brot af því helsta. Það má vænta þess að starfsfólk Skallans verði öflugara í skrifum sínum á komandi mánuðum. Allavega þar til sumarfrí hefst.



mánudagur, febrúar 26, 2007

Cancelled

The pre-pro tour, þar sem ég ætlaði að fara að kanna aðstæður fyrir verðandi komu pro-tours meðlima til Róm, var aflýst sökum leiðinda aðstæðna sem gerðu það að verkum að ég komst ekki í þetta skiptið En gott og vel, ekkert við því að gera. Það gefst vonandi tími til að kíkja þangað áður en tímabilinu lýkur, en það er nú ekki alveg víst hvort það takist þar er nú ekki mikið eftir af því. Einn mánuður, og svo byrjar playoffs. Svissararnir eru nú samt ekkert að flýta sér þegar kemur að úrslitakeppninni. Taka í kringum tvo mánuði í þetta sem mér finnst nú ansi langt, svo til að draga þetta ennþá lengur þá henda þeir úrslitaleiknum í bikarnum inní miðja úrslitakeppni. Held nú að það væri nú talsvert sniðugara að klára það áður en úrslitakeppnin sjálf hefst, en ég ræð víst engu hér.

Ég verla alltaf, eða oftast, í matinn í Frakklandi, enda bara korter í burtu frá Porrentuy. Mér finnst e-ð svo gaman að vita af því að Frakkland er bara smá spotta í burtu. Svipað eins og að keyra frá Laugarnesinu uppí Árbæ. Finnst ákveðin sjarmi alltaf koma þaðan. Fyndið líka þegar maður fer í þessar verslunarferðir hve mikill munur er á frönsku landamæravörðunum og þeim svissnesku. Svissararnir eru mjög stífir og fara oftast að settum reglum, stoppa mann og spyrja mann úti erindagjörðir og þess háttar. Hafa tekið mig t.d. ansi oft til hliðar , rennt yfir bílinn og pokana, þegar franskan var það döpur að ég gat ekki ælt útur mér að ég væri að spila fyrir BCBoncourt og hefði bara verið i sma verslunarferð. Frakkarnir virðast hinsvegar mun meira "loose". Stundum er t.d. enginn vörður hjá frönsku stöðinni, en yfirleitt sitja þeir inni í básnum sínum og veifa manni í gegn enda uppteknir við lestur eða e-ð slíkt. Í þau fáu skipti sem þeir hafa látið sjá sig útur básnum eru þeir oftast í hrókasamræðum við hvorn annan þannig að þeir veifa manni í gegn svo maður sé ekki að trufla þá.
Ég fer ca. einu sinni í viku þangað að versla og í öll þau skipti hef ég ekki þurft að segja eitt aukatekið orð við Frakkana, hinsvegar þarf ég hér um bil alltaf að tjá mig e-ð við Svissarana til að komast í gegn. ´
Nú er ég ekki alveg nógu vel að mér um hvernig hinn almenni Frakki er, en mér finnst þessir svissnesku landamæraverðir vera lýsandi dæmi um hvernig hlutirnir eru hérna í Sviss. Hér er farið eftir öllum reglum til hins ýtrasta, og oftar en ekki gert meira vesen úr einföldum hlutum heldur en þörf er á. Kannksi einhver sem kann betur á Frakkana geti svarað því hvort þeir séu svona slakir á því yfir höfuð, eða eins og Aðalsteinn Karlsson myndi segja "Illa slakir". Óskar getur þú kannski svarað þessu? Eru þessir landamælaverðir kannski lýsandi dæmi um muninn á Sviss og France?



mánudagur, febrúar 19, 2007

Pre-Pro-Tour??

Þar sem það var frí útaf bikarúrslitaleiknum um þar síðustu helgi(þriggja daga frí), þá ákvað ég að skella mér í smá roadtrip. Þýskaland(Köln) varð fyrir valinu þar sem það er nu ekki svo langt frá, og einnig býr fyrrverandi liðsfélagi minn úr háskólaþar, hann Timo fyrir þá sem muna eftir honum og hans stutta stoppi á Íslandi jólin 2004 ef ég man rétt. Tæpir 5tímar í keyrslu sem er nú ekki svo slæmt. Samt ekki nógu spes að keyra einn, en þá er einmitt lykillinn að góðri bílferð góð músík. Ipodinn bjargaði mér þegar ég var kominn með leið á geisladiskunum í bílnum. Yndislegt að vera kominn með hann í gang loksins.
Ég var hrifinn af Köln. Ég veit ekki hvort það var vegna þess að borgin var svona hugguleg, eða þá að ég var bara svo feginn að komast í iðandi mannlífið. Aðeins öðruvísi en hér Porrentruy. Föstudagskvöldið var bara rólegheit þar sem timo átti leik á laugardeginum. Fórum í bío á Blood Diamond, ágætis mynd. Laugardagurinn var öllu kraftmeiri, en við þurftum að byrja daginn á að kaupa svarta skó. Hvítu Converse skórnir mínir voru ekki að gera sig fyrir þýskt skemmtanalíf. Óþolandi hvað Þjóðverjinn er strangur á helvítis skónna þegar það kemur að því að fara inn á skemmtistaði. Skiptir nánast engu máli í hvaða outfitti þú ert svo framanlega að skórnir séu dökkir, og helst ekki sneakers, á kemstu inn. Þetta tók aðeins lengri tíma en var búist við þar sem ég gat ómögulega fundið svarta skó sem voru skikkanlegir og kostuðu ekki morðfjár, ég var nefnilega ekki að fara að kaupa e-ð dýrt par sem ég átti bara eftir að nota þetta eina kvöld. Þannig ég endaði á þvi að kaupa svarta strigaskó sem ég sé fram á að nota allavega oftar en bara þetta kvöld. Pínu áhætta þar sem þetta voru jú strigaskór, en sem betur fer þekkti Timo dyravörðinn þannig þetta var ekkert vesen.
Sem sagt eftir leikinn hjá timo var farið heim til hans með kananum í liðinu hans og byrjað að sötra og svo kíkt á þennan huggulega bar. Góð stemming og virkilega gott kvöld. Get því miður ekki sagt hið sama um sunnudaginn þar sem hann fór mestur í þynnkubíltúr aftur til Porrentruy.


Núna er aftur frí helgi, þeas það er enginn leikur, þannig menn eru að vonast eftir að fá kannski helgina off. Ég veit ekki hverjar líkurnar eru á að það gerist, en ef svo heppilega vill til þá ætla ég að taka sma pre-pro-tour til jóns. Ætla að fara að kanna aðstæður fyrir pro-tourinn. Leiðinlegt samt að Penó skuli ekki mæta þetta árið þar sem jón er nu kominn aftur til italíu, en penó kann svakalega vel á Ítalíu. Kostar nefnilega ekki neitt neitt að fljúga héðan til Róm. Blessi easyjet. Kann mjög vel við svona company.
Ég fæ vonandi staðfest á morgun hvort af þessu verði.

að lokum mæli ég með að fólk klikki á þetta HER og skoði danskeppnina sem átti sér stað á æfingu austurstrandarliðsins fyrir stjörnuleik NBA. Að sjá flykki eins og shaq hreyfa sig svona er ótrulegt






Felagarnir

Finnslan
Sólmundur Hólm
Hrafn Harðarson-mbloggRisinn
Kommóðan
Linda Hreiðars
Þessar elskur
Hjallærislega Hjaltaður
Markus Ragnheidar
Don Vito
Obba dýrfjörð
MYNDIR

Könnunin <